20 Júlí 2008 12:00

Um kl. 21:00 í gærkveldi barst tilkynning til lögreglunnar á Vestfjörðum frá gönguhópi sem var á ferð skammt frá Hvannadalsvatni, milli Hornvíkur og Hælavíkur á Ströndum, þess efnis að þeir hefðu séð, eða töldu sig sjá tvo ísbirni þar á ferð.  Strax farið í að kanna málið frekar.  Þar sem vitað var að á svæðinu eru margir ferðamenn, fór lögregla kanna með mannaferðir þarna,  með það fyrir augum að tryggja öryggi þeirra sem þarna voru. 

Björgunarskipið Gunnar Friðriksson frá Ísafirði var kallað út og það sent áleiðis norður á Strandir með tvo lögreglumenn um borð.  Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ, send vestur til að aðstoða við leit á svæðinu.  Einnig var haft samband við ferðaþjónustuaðila sem sjá um ferðir með ferðamenn á Hornstrandir og rætt við menn sem þekkja svæðið vel.  Upp úr miðnætti var þyrla gæslunnar kominn á svæðið, búið að hafa samband við þá ferðamenn sem vitaða var um að væru þarna og þeir látnir vita. 

Þyrlan leitaði svæðið fram til kl. 02:30 að hún snéri til Ísafjarðar og í framhaldi af því var farið yfir stöðuna.  Leitað var mjög vel á svæðinu úr lofti og frá sjó og rætt við fólk sem þarna var á ferðinni.  Þar sem ekkert kom í ljós við þessa leit sem bent gæti til þess að ísbirnir hafi verið þarna á ferð, var ákveðið að hætta frekari aðgerðum.   Eftir þessa athugun var talið líklegt að um missýn hafi verið að ræða.  Lögregla vill koma því að framfæri að allar svona tilkynningar eru teknar alvarlega og málin skoðuð.