14 Febrúar 2020 09:21

Gert er ráð fyrir að hvessi á Austurlandi með morgninum og auki við úrkomu. Lögregla hvetur íbúa til að fylgjast vel með veðurfréttum og færð á vef Vegagerðar. Lokanir vega eru nú þegar orðnar umtalsverðar, lokað er á Fagradal og Fjarðarheiði, Vopnafjarðarheiði og Möðrudalsöræfum sem og er lokað frá Skrúðskambi á Suðurfjarðarvegi að Höfn.

Lögregla áréttar tilmæli til íbúa um að vera ekki á ferð að nauðsynjalausu.