4 Mars 2024 08:38
  • Ekki hafa komið jafn fáar tilkynningar um kynferðisbrot til lögreglu síðan 2017.    
  • Tilkynningum um nauðganir og kynferðisofbeldi gegn börnum fækkar umtalsvert. 
  • Um 45% brotaþola eru börn að aldri. 

Ný skýrsla ríkislögreglustjóra um kynferðisbrot hefur verið birt á vefsvæði lögreglunnar. Í skýrslunni má finna upplýsingar um fjölda tilkynninga til lögreglu vegna kynferðisbrota árið 2023.  Þegar litið er til kynferðisbrota sem tilkynnt eru lögreglu árið 2023 má sjá að tilkynnt brot voru 521 talsins á árinu 2023 eða 15% færri en að meðaltali samanborið við síðustu þrjú ár þar á undan.   

Á árinu 2018 voru brotin 570 og fjölgaði þannig um 18% frá árinu á undan og voru yfir 600 mál árin 2019, 2021 og 2022 en fjöldi mála hjá lögreglu var almennt lægri fyrir þann tíma. Fara þarf aftur til 2017 til að sjá færri tilkynningar um kynferðisbrot til lögreglu. 

Lögreglan skráir bæði hvenær kynferðisbrotið átti sér stað og hvenær það var tilkynnt til lögreglu þar sem í hluta mála líður langur tími frá því að brot á sé stað og þar til það er tilkynnt til lögreglu.  Í fyrra var þannig tilkynnt um 184 nauðganir til lögreglu og þar af 121 sem áttu sér stað á árinu. Tilkynntum nauðgunum fækkaði um 13% samanborið við meðaltal síðustu þriggja ára þar á undan. 

Rúmlega 10 ára aldursmunur á brotaþolum og grunuðum 

Kynferðisofbeldi er kynbundið ofbeldi. Þannig eru konur 84% brotaþola og 95%  grunaðra eru karlar í kynferðisofbeldismálum sem tilkynnt eru til lögreglu.  Töluverður aldursmunur er milli brotaþola og grunaðra. Um 45% brotaþola eru undir 18 ára í öllum kynferðisbrotum á meðan 13% grunaðra eru undir 18 ára.  

Alls var tilkynnt um 102 kynferðisbrot gegn börnum, og samanborið við meðaltal síðustu þriggja ára var fjöldi tilkynntra mála 20% færri. Tilkynningum um barnaníð voru 38, sem er 21% fjölgun slíkra tilkynninga samanborið við meðaltal síðustu þriggja ára þar á undan.   

Árið 2023 var gerandinn óþekktur í 14% brotanna. Þegar greint var nánar í hvers konar kynferðisbrotum ekki var hægt að gera grein fyrir geranda mátti sjá að það var algengast í nauðgunum, eða í 20 nauðgunum sem tilkynntar voru lögreglu á árinu 2023. 

Fjölgun tilkynninga og fækkun brota 

Eitt af meginmarkmiðum lögreglunnar samkvæmt gildandi löggæsluáætlun 2019-2023 er að hlutfall þeirra sem hafa orðið fyrir kynferðisbrotum og tilkynna það til lögreglu aukist á tímabilinu um leið og kynferðisbrotum fækki. Í þolendakönnun lögreglunnar árið 2023 þar sem spurt er út í eigin reynslu árið 2022 kom fram að 1,9% svarenda höfðu orðið fyrir kynferðisbroti og 10,3% þeirra tilkynntu brotið til lögreglu.  

Ætíð er hægt að tilkynna brot með því að hafa samband við 112.  Sjá einnig leiðarvísir um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu á ofbeldisgátt 112.is. 

 Samantekt má finna hér.  

 

Nánari upplýsingar veitir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, í síma 444-2570 eða helena.sturludottir@logreglan.is