4 Desember 2008 12:00

Lögreglunni á Selfossi barst í gær tilkynning frá Fangelsinu á Litla hrauni um að fíkniefnaleitarhundur fangelsisins hefði „merkt” á konu sem var að koma í heimsókn til eins fangans. Konan hafi síðan framvísað fíkniefnum sem hún var með innvortis við fangaverði. Hún var flutt á lögreglustöðina á Selfossi og yfirheyrð þar en látin laus að því loknu. Um lítliræði af kókaíni og amfetamíni auk lyfjataflna var að ræða.

Fangaverðir á Litla Hrauni leggja mikla vinnu í að upplýsa um tilraunir til að smygla fíkniefnum inn til fanga þar og er samstarf þeirra við lögreglu mikið og gott í þeim efnum. Samstarf þessarra aðila skilaði því að hald var lagt á 30 gramma sendingu af amfetamíni til fanga í síðustu viku.