21 Febrúar 2008 12:00

Tilkynnt hefur verið til lögreglunnar á Eskifirði um símtöl, til einstaklinga hér á landi þar sem tilkynnt er um á ensku að viðkomandi hafi unnið virði 75% í ferð til útlanda, en það verði að greiða með greiðslukorti þau 25% sem upp á vantar inn á ákveðinn reikning.  Við eftirgrenslan lögreglunnar á Eskifirði kom í ljós að þessi símtöl koma erlendis frá.  Lögreglan telur einsýnt að hér sé verið að gera tilraun til þess að ná kreditkortanúmerum í því skyni að svíkja út fé, og vill  eindregið vara við því að fólk láti kortanúmerin sín í té. 

Þessi aðferð virðist vera nýleg að haft sé beint samband við fólk með þessum hætti, en eins og flestir vita hefur lögreglan áður varað við alskonar bréfum og tölvupósti þar sem tilkynnt er um allskonar ávinning og óskað eftir að fólk láti í té reikningsnúmer sín og jafnvel innáborganir.