13 Ágúst 2012 12:00

Nokkur fjöldi tuskudýra, sem öll fundust á sama staðnum, er í óskilum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eigandinn getur vitjað þeirra hjá lögreglunni en upplýsingar eru veittar í síma 444-1000 en einnig má senda fyrirspurnir í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is Krafist verður staðfestingar á eignarhaldi.