23 Febrúar 2015 11:53

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði tvær kannabisræktanir í nótt. Lagði megna kannabislykt frá húsnæðinu sem þær voru í. Lögreglumenn knúðu því dyra og fengu heimild til leitar. Í umræddu húsnæði reyndist ekki vera ein kannabisræktun heldur tvær, sem tveir einstaklingar játuðu aðild sína að. Málið telst því upplýst.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.