5 Ágúst 2013 12:00
Laust fyrir klukkan þrjú í gær, sunnudag, varð alvarlegt umferðarslys á Suðurlandsvegi, skammt austan við Meðallandsveg. Fólksbifreið var ekið út af veginum en fjórar manneskjur voru í bifreiðinni sem valt nokkrar veltur út fyrir veg og hafnaði á hvolfi. Tveir farþegar köstuðust úr út bifreiðinni en tveimur var bjargað úr henni í þann mund sem eldur kviknaði í henni.
Farþegarnir sem köstuðust út, stúlkur fæddar 1997 og 1998 voru síðar úrskurðaðar látnir á vettvangi þegar lífgunartilraunir, sem vegfarendur hófu en var haldið áfram af hjálparliði, báru ekki árangur. Ökumaður og farþegi í framsæti, karl og kona, voru síðan flutt með þyrlum landhelgisgæslunnar á slysadeild LSH og eru nú á gjörgæsludeild, þó ekki talin í lífshættu. Fólkið er allt pólskir ríkisborgarar en stúlkurnar sem létust voru gestkomandi á Íslandi.
Mikill viðbúnaður var vegna slyssins. Lögreglumenn frá lögreglunni á Hvolsvelli, staðsettir á Kirkjubæjarklaustri, auk lögreglumanns frá rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi komu á vettvang ásamt sérfræðingi í bíltæknirannsóknum. Einnig kom á vettvang slökkvilið frá Vík og Kirkjubæjarklaustri sem og sjúkrabílar frá Vík og Kirkjubæjarklaustri. Læknir frá Vík kom á staðinn auk þess sem björgunarsveitir í Skaftárhreppi aðstoðuðu við vinnu á vettvangi og við að loka umferð um Suðurlandsveg á meðan vinnu stóð. Umferð var beint um Meðallandsveg og Hrífunes á meðan lokunin stóð en vegurinn var opnaður um 18:30
Fulltrúi frá Rannsóknarnefnd umferðarslysa kom á vettvang.
Rannsókn á tildrögum slyssins stendur yfir en rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi fer með hana í samvinnu við lögregluna á Hvolsvelli.
Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um tildrög slyssins eða rannsókn þess að sinni.