27 Júlí 2010 12:00

Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur stóraukið umferðareftirlit þegar nær dregur þjóðhátíð sem fram fer næstu helgi.  Í dag voru tveir ökumenn kærðir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna, annar á fertugsaldri en hinn á þrítugsaldri.  Í öðru tilfellinu var gerð húsleit á heimili ökumannsins og fundust nokkur grömm af hassi við þá leit.  Þá var einn ökumaður stöðvaður fyrir akstur sviptur ökuréttindum.   Á komandi dögum mun mikið mæða á fíkniefnaleitarhundi embættisins og var hann við störf í dag við komu Herjólfs til Eyja.