26 Október 2012 12:00

Lögreglan á Suðurnesjum framkvæmdi í gærkvöldi húsleit í húnsæði í Reykjanesbæ þar sem grunur lék á að fíkniefnasala færi fram. Við húsleitina fannst töluvert magn af kannabisefnum í söluumbúðum. Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru handteknir vegna málsins. Við yfirheyrslur hjá lögreglu játuðu mennirnir sölu fíkniefna og telst málið upplýst.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.