24 Maí 2008 12:00

Lögreglan á Selfossi stöðvaði á milli klukkan átta og níu í morgun um 70 ökumenn á Suðurlandsvegi við Biskupstungabraut. Þetta var almennt umferðareftirlit í þeim tilgangi að kanna ástand ökumanna og ökutækja.  Í þessum hópi reyndust tveir ökumenn sviptir ökuréttindum og verða ákærðir fyrir það brot.