1 Apríl 2014 12:00

Athugull vegfarandi sá til tveggja manna koma út um glugga á skemmtistaðnum Hvítahúsinu á Selfossi rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi og fara frá staðnum á bifreið.  Lögreglan fann bifreiðina í Ölfusi stuttu síðar.  Í bifreiðinni voru tveir 17 ára piltar af höfuðborgarsvæðinu.  Þeir voru handteknir og færðir í lögreglustöð til yfirheyrslu.  Þeir viðurkenndu að hafa brotist inn í Hvítahúsið í gærkvöldi og einnig í eitt skipti fyrr í vetur.  Erindi þeirra austur á Selfoss að þessu sinni var að selja úlpu sem þeir höfðu tekið ófrjálsri hendi í heimahúsi í Kópavogi fyrir um tveimur vikum síðan.  Vegna aldurs piltanna var fulltrúi barnaverndar viðstaddur yfirheyrslu og foreldrar upplýstir um stöðu máls.  Piltarnir voru samstarfsfúsir við að upplýsa málin.