17 Janúar 2013 12:00

Úlpurnar sem stolið var úr fatahengi í anddyri Fjölbrautaskóla Suðurlands síðastliðinn föstudagsmorgun eru komnar í leitirnar.  Lögreglan fékk ábendingar frá borgurum eftir að mynd af ungri konu, sem tók úlpurnar birtist, í netmiðlunum DFS.is og Sunnlennska.is.  Lögreglumenn á vakt könnuðu þær vísbendingar sem bárust og unnu úr þeim.  Ítarleg rannsókn þeirra leiddi svo til þess að grunur féll á tvítuga konu með lögheimili á höfuðborgarsvæðinu, sem ekki tengist skólanum á neinn hátt.  Hjá konunnu fundust tvær úlpur og sú þriðja var komin í sölu en náðist til baka.  Samtals verðmæti úlpnanna þriggja úr verslun er um 130 þúsund krónur.  Lögregla vill koma á framfæri þakklæti til forráðamanna FSU, sem gerðu allt sem til þurfti,  og þeim einstaklingum sem komu með upplýsingar eftir að leitað var eftir þeim á netmiðlum.