27 Nóvember 2007 12:00

Samkvæmt gögnum frá Umferðarstofu og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fækkaði slysum á þremur gatnamótum eftir að þeim var breytt úr ljósastýrðum gatnamótum í hringtorg. Á sama tíma fjölgaði hinsvegar óhöppum án slysa á þessum sömu gatnamótum.

Fækkun slysa er í samræmi við aðrar rannsóknir á þessu sviði en þar hefur ekki komið fram að óhöppum fjölgi með tilkomu hringtorga. Vera má að það skýrist af því að hér er ekki tekið tillit til umferðarþunga á þessum svæðum en öll gatnamótin þrjú eru á svæðum þar sem umferð hefur aukist verulega á síðustu árum, auk þess sem ökutækjaeign á höfuðborgarsvæðinu hefur vaxið um rúmlega 57% frá árinu 2000.

Þó varhugavert sé að alhæfa um umferðaröryggi hringtorga út frá þessum tölum þá virðist þó sem þau dragi mjög úr slysatíðni. Nánari upplýsingar um samantektina má finna hér.