5 Ágúst 2011 12:00

Á fimmtudaginn 04. ágúst 2011 stöðvaði fíkniefnadeild lögreglunnar á Suðurnesjum umfangsmikla kannabisræktun í  heimahúsi á Suðurnesjum.  Við húsleitina var lagt hald á um 200 kannabisplöntur á ýmsum ræktunarstigum.  Einnig var lagt hald á búnað til ræktunar.  Húsráðandinn var handtekinn á staðnum og við yfirheyrslu viðurkenndi hann  ræktunina og telst málið upplýst.

Lögreglan á Suðurnesjum minnir á fíkniefnasímsvarann, sem er 800-5005.  En þangað er hægt að hringda nafnlaust með ábendingar um fíkniefnamisferli.