19 Ágúst 2008 12:00

Í ljósi þess að framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu byrja í þessari viku eftir sumarleyfi má búast við að umferð þyngist á álagstímum. Eru ökumenn beðnir um að hafa þetta í huga og gera ráð fyrir að ferðatími, sérstaklega á morgnana milli klukkan átta og níu, kunni að lengjast frá því sem nú er. Gott ráð til að komast hjá mestu umferðarösinni er að leggja fyrr af stað en ella eða síðar eftir atvikum.

Reynsla síðustu tveggja ára hefur sýnt að umferðaróhöppum í september, samanborið við meðaltal tveggja mánaða þar á undan, fjölgar um allt að 20% og óhöppum þar sem meiðsl verða á vegfarendum um 30%. Til mikils er því að vinna fyrir vegfarendur að aka varlega og þá sérstaklega næstu vikur þegar umferðin kemur til með að aukast mikið og nýir vegfarendur bætast í hópinn.