18 Desember 2018 11:27

Nokkrir ökumenn hafa á síðustu dögum verið kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum. Sá sem hraðast ók mældist á 131 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Þá voru þrír teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur og skráningarnúmer fjarlægð af fáeinum bifreiðum sem voru ótryggðar eða óskoðaðar í umferðinni.