22 Maí 2018 09:32

Ökumaður vespu sem lögreglan á Suðurnesjum handtók í fyrrinótt reyndist hafa ýmislegt á samviskunni. Hann var grunaður um ölvunar – og fíkniefnaakstur. Þá var hann með kannabisefni í fórum sínum.

Enn fremur voru fáeinir ökumenn til viðbótar teknir úr umferð vegna gruns um ölvunar- eða fíkniefnaakstur.

Loks var ökumaður kærður fyrir að aka um og nota ekki öryggisbúnað fyrir 18 mánaða barn sem sat í fangi farþega í bifreiðinni.