22 Febrúar 2016 13:01

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði undir nýliðna helgi bifreið sem í voru sjö ungmenni og var það tveimur fleira en bifreiðin var skráð fyrir. Flestir farþeganna sex voru ölvaðir, en þrír yngstu voru aðeins sextán og sautján ára. Þá voru hljólbarðar bifreiðarinnar í ólagi því þeir voru orðnir svo slitnir að þeir voru nánast án munsturs. Skráningarnúmerin voru því fjarlægð af bifreiðinni og barnaverndaryfirvöldum var gert viðvart um málið.

Þá voru tveir ökumenn færðir á lögreglustöð um helgina vegna gruns um ölvunarakstur.

Lögregla hafði einnig gát á notkun öryggisbelta og reyndust átta aka án þess að hafa þau spennt. Sitthvað fleira var athugavert, t.d. ólögleg lagning ökutækja og einnig að bifreiðar væru ótryggðar eða óskoðaðar. Voru skráningarmerki fjarlægð af þeim.