20 Nóvember 2013 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Höfðabakka, Strengs og Bæjarháls í Reykjavík kl. 19.07 mánudagskvöldið 4. nóvember. Þar rákust saman dökkgrár Peugeot 508 (PB-P96) og ljósgrár Toyota Hilux

(PU-477). Ökumönnunum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa, en annar þeirra leitaði á slysadeild eftir óhappið. Toyotunni var ekið suður Höfðabakka en Peugeotinum austur Streng og inn á áðurnefnd gatnamót þegar áreksturinn varð.

Þeir sem urðu vitni að óhappinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar.

Frá vettvangi.