2 Desember 2013 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu í Reykjavík kl. 18.40 miðvikudaginn 20. nóvember sl. Þar rákust saman ljósgrár Toyota Land Cruiser (LN-702) og hvítur Skoda Octavia (PK-031). Ökumönnunum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa, en lögregla var ekki kölluð á vettvang. Toyotunni var ekið austur Hringbraut en Skodanum vestur Hringbraut, ökumaður Skodans hugðist beygja á gatnamótunum og aka síðan áfram suður Njarðargötu þegar áreksturinn varð.

Þeir sem urðu vitni að óhappinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar.