27 Febrúar 2014 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á gatnamótum Kauptúns og Urriðaholtsstrætis í Garðabæ miðvikudaginn 26. febrúar um klukkan 16.28. Þar lentu saman fólksbifreið af Hyundai Tucson gerð, grá/svört að lit, sem ekið var austur Kauptún og fólksbifreið af gerðinni Suzuki Grand Vitara, rauð að lit, sem ekið hafði verið suður í átt að Urriðaholtsstræti (þ.e. frá brú sem liggur yfir Reykjanesbraut), en ökumönnunum ber ekki saman um stöðu umferðarljósa þegar óhappið varð.

Þeir sem urðu vitni að árekstrinum eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar.