4 Nóvember 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á Gullinbrú í Reykjavík í gær. Tilkynnt var um óhappið rétt fyrir klukkan fjögur, eða 15.58, en þá var hvítum jepplingi af gerðinni Hyundai Tucson, skráningarnúmer OM484, ekið á ljósastaur en bíllinn var á suðurleið. Þeir sem urðu vitni að óhappinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglustöðina á Völuteigi 8 í Mosfellsbæ í síma 444-1190 á skrifstofutíma. Meðfylgjandi er mynd frá vettvangi.