27 Febrúar 2018 11:07

Nokkuð hefur verið um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Ökumaður sem ók fram úr bifreið á Reykjanesbraut missti vald á sinni bifreið með þeim afleiðingum að hún fór að hringsnúast á veginum, lenti á ljósastaur og endaði utan vegar.

Annar ökumaður virti ekki biðskyldu og ók á bifreið sem var á ferð eftir Stapabraut í Njarðvík.

Þá var bifreið ekið á kerru sem stóð á miðjum Garðvegi. Beislið á kerrunni hafði brotnað og ekki tekist að fjarlægja hana í tæka tíð áður en óhappið varð.

Ekki urðu alvarleg meiðsl á fólki í þessum óhöppum en töluvert eignatjón.