14 Október 2016 10:46

Fimm tjónvaldar létu sig hverfa af vettvangi í vikunni eftir að hafa valdið tjóni á jafnmörgum bifreiðum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum.  Þessu til viðbótar voru skráð allmörg umferðaróhöpp, þar á meðal árekstur á Reykjanesbraut milli Grænásbrautar og Hafnavegar og aftanákeyrsla á Hafnargötu. Engin slys urðu á fólki.

Þá fauk mannlaus bifreið á aðra bifreið, einnig mannlausa, á bílastæði við Sundmiðstöð Njarðvíkur.

Loks voru tveir ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og skráningarnúmer fjarlægð af einni bifreið. Síðastnefnda atvikið væri ekki í frásögur færandi ef bifreiðin hefði ekki verið óskoðuð því hana hefði átt að færa til skoðunar 1. ágúst 2011.