10 Janúar 2012 12:00

Eitt umferðarslys varð á höfuðborgarsvæðinu á laugardag og annað í gær, mánudag. Á laugardag kl. 15.04 rákust saman tveir bílar á Bústaðavegi við Efstaleiti. Öðrum þeirra var ekið austur Bústaðaveg en ökumaðurinn hugðist síðan beygja inn í Efstaleiti til norðurs. Þar virti hann hins vegar ekki varúð til hægri og ók í veg fyrir bíl sem var ekið vestur Bústaðaveg. Síðarnefnda bílnum ók kona á þrítugsaldri og var hún flutt með sjúkabifreið á slysadeild. Meiðsli hennar voru talin minniháttar. Seinna umferðarslysið varð á ljósastýrðum gatnamótum Gullinbrúar, Höfðabakka og Stórhöfða klukkan 16.31 á mánudag. Þar var líka um að ræða tveggja bíla árekstur. Bíl var ekið norður Höfðabakka en ökumaður hans hugðist síðan beygja inn á Stórhöfða til vesturs. Þar gætti hann hins vegar ekki að sér og ók í veg fyrir bíl sem var ekið suður Gullinbrú og inn á áðurnefnd gatnamót. Aðgæsluleysi fyrrnefnda ökumannsins er því um að kenna en sá bar því við að hann hefði ekki séð ökutækið sem kom á móti. Báðir ökumennirnir voru fluttir á slysadeild en um var að ræða karl á fimmtugsaldri og konu á þrítugsaldri. Hann var með áverka á handlegg en hún á vinstri síðu. Meiðsli þeirra voru talin minniháttar.

Eins og fram kom í bráðabirgðatölum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu varð um það bil eitt umferðarslys hvern dag ársins 2011,  eða samtals 358 á tímabilinu 1. janúar til 27. desember. Tölur um fjölda slasaðra eða alvarleika liggja ekki fyrir en ljóst er að slasaðir eru nokkuð fleiri en fjöldi slysa segir til um. Í öllum tilvikum er um atvik að ræða þar sem vegfarendur þurfa læknisaðstoðar við í kjölfar umferðaróhapps. Meiðsli þeirra eru m.a. tognanir, beinbrot, innvortis meiðsl, mænuskaðar og höfuðáverkar. Ljóst er því að margir eiga um sárt að binda vegna umferðarslysa.

Það er mat lögreglu að hægt sé að koma í veg fyrir umferðarslys leggist allir á eitt um að aka gætilega og sýna tillitssemi í hvívetna. Á það skortir í allt of mörgum tilfellum. Til að freista þess að sýna fram á tengsl orsaka og afleiðinga að þessu leyti mun lögreglan á höfuðborgarsvæðinu senda út tilkynningu tvisvar í viku með upplýsingum um þau umferðarslys sem hún kemur að.  Þar mun koma fram hvar, hvenær og með hvaða hætti slysið varð, að hverju rannsókn lögreglu beinist, hversu margir slösuðust og eftir atvikum alvarleiki meiðslanna.

Um tilraunaverkefni lögreglu er að ræða. Það mun standa yfir í einn mánuð til að byrja með og hófst formlega 1. janúar. Tilkynningarnar eru sendar út á þriðjudögum og föstudögum. Frá áramótum hafa orðið sex umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu.