3 Janúar 2012 12:00

Árið 2012 fer sæmilega af stað hvað umferðina varðar en fyrstu tvo daga ársins varð eitt umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu. Sextán ára piltur var þá fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild eftir tveggja bíla árekstur á gatnamótum Bæjarháls og Stuðlaháls í Reykjavík klukkan 17.48 á nýársdag. Pilturinn, sem var í æfingaakstri ásamt leiðbeinanda, ók öðrum bílnum en orsök slyssins er rakin til þess að ungi maðurinn virti ekki biðskyldu á áðurnefndum gatnamótum. Meiðsli hans voru talin minniháttar.

Eins og fram kom í bráðabirgðatölum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu varð um það bil eitt umferðarslys hvern dag ársins 2011,  eða samtals 358 á tímabilinu 1. janúar til 27. desember. Tölur um fjölda slasaðra eða alvarleika liggja ekki fyrir en ljóst er að slasaðir eru nokkuð fleiri en fjöldi slysa segir til um. Í öllum tilvikum er um atvik að ræða þar sem vegfarendur þurfa læknisaðstoðar við í kjölfar umferðaróhapps. Meiðsli þeirra eru m.a. tognanir, beinbrot, innvortis meiðsl, mænuskaðar og höfuðáverkar. Ljóst er því að margir eiga um sárt að binda vegna umferðarslysa.

Það er mat lögreglu að hægt sé að koma í veg fyrir umferðarslys leggist allir á eitt um að aka gætilega og sýna tillitssemi í hvívetna. Á það skortir í allt of mörgum tilfellum. Til að freista þess að sýna fram á tengsl orsaka og afleiðinga að þessu leyti mun lögreglan á höfuðborgarsvæðinu senda út tilkynningu tvisvar í viku með upplýsingum um þau umferðarslys sem hún kemur að.  Þar mun koma fram hvar, hvenær og með hvaða hætti slysið varð, að hverju rannsókn lögreglu beinist, hversu margir slösuðust og eftir atvikum alvarleiki meiðslanna.

Um tilraunaverkefni lögreglu er að ræða. Það mun standa yfir í einn mánuð til að byrja með og hófst formlega 1. janúar. Tilkynningarnar verða sendar út á þriðjudögum og föstudögum.