31 Janúar 2012 12:00

Þrjú umferðarslys hafa orðið á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga. Á föstudag klukkan 8.01 varð tveggja bíla árekstur á mótum Kársnesbrautar og Hábrautar. Ökumaður sem fór norður Hábraut hugðist hugðist beygja inn á Kársnesbraut til vesturs en ók þá í veg fyrir bíl sem kom austur Kársnesbraut. Báðir ökumennirnir voru fluttir á slysadeild en meiðsli þeirra voru talin minniháttar. Slysið er rakið til þess að biðskylda hafi ekki verið virt og ökuhraði ekki í samræmi við aðstæður og beinist rannsókn lögreglu að þessum atriðum. Sama dag klukkan 12.55 varð líka tveggja bíla árekstur á ljósastýrðum gatnamótum Breiðhöfða og Bíldshöfða. Bíl var ekið norður Breiðhöfða og hugðist ökumaður hans beygja vestur Bíldshöfða en þá var bíl ekið suður Breiðhöfða og inn á gatnamótin með fyrrgreindum afleiðingum. Þrír voru fluttir á slysadeild eftir áreksturinn og var einn þeirra alvarlega slasaður en sá handleggsbrotnaði á báðum höndum. Rannsókn lögreglu beinist bæði að of hröðum akstri og akstri gegn rauðu ljósi. Og á sunnudag klukkan 18.03 var ekið á gangandi vegfaranda á Kalkofnsvegi. Sá var á leið yfir gangbraut við Hörpu en gangbrautin er lögð með hvítum hellusteinum að hluta til og upphækkuð frá akbrautinni. Á þessum stað eru ekki umferðarmerki og eins er lýsingu ábótavant og hefur borgaryfirvöldum verið send ábending vegna þessa. Meiðsli vegfarandans voru ekki talin alvarleg. 

Það er mat lögreglu að hægt sé að koma í veg fyrir umferðarslys leggist allir á eitt um að aka gætilega og sýna tillitssemi í hvívetna. Á það skortir í allt of mörgum tilfellum. Til að freista þess að sýna fram á tengsl orsaka og afleiðinga að þessu leyti mun lögreglan á höfuðborgarsvæðinu senda út tilkynningu tvisvar í viku með upplýsingum um þau umferðarslys sem hún kemur að.  Þar mun koma fram hvar, hvenær og með hvaða hætti slysið varð, að hverju rannsókn lögreglu beinist, hversu margir slösuðust og eftir atvikum alvarleiki meiðslanna.

Um tilraunaverkefni lögreglu er að ræða. Það mun standa yfir í einn mánuð til að byrja með og hófst formlega 1. janúar. Tilkynningarnar eru sendar út á þriðjudögum og föstudögum. Frá áramótum hafa orðið tuttugu og þrjú umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu.

Frá vettvangi á Kársnesbraut.