4 Ágúst 2013 12:00

Fyrr í dag varð alvarlegt umferðarslys á Suðurlandsvegi skammt frá Hrífunesi í Vestur Skaftafellsýslu. Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að tveir köstuðust út úr bifreiðinni. Tveir eru látnir og eru þyrlur LHG eru að flytja aðra tvo á sjúkrahús í Reykjavík og er annar þeirra alvarlega slasaður, en fjórir voru í bifreiðinni.

Suðurlandsvegur er lokaður og umferð beint um hjáleið um Meðalland.   Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu en lögreglumenn, sjúkraflutningamenn og björgunarsveitir  eru við störf á vettvangi.