8 Apríl 2013 12:00

Samkvæmt bráðabirgðatölum lögreglu hafa 92 umferðarslys orðið á höfuðborgarsvæðinu fyrstu þrjá mánuði ársins. Slasaðir eru 124. Á sama tíma í fyrra urðu 82 slys þar sem slasaðir voru 136. Því er um 11 prósent fjölgun slysa að ræða milli ára en 9 prósent fækkun slasaðra.  

Orsök slysanna fyrstu þrjá mánuði ársins má í langflestum tilfellum rekja til hegðunar ökumanna. Akstur er þá ekki í samræmi við aðstæður, ekið of hratt eða ógætilega. Gangandi og hjólandi eru taldir eiga sök, eða hluta sakar, í tveimur tilfellum.

Flest slysin, eða 28, urðu vegna útafaksturs þar sem ökutæki valt eða var ekið á staur. Næstflest þeirra mátti rekja til of stutts bils milli bifreiða, eða 15 talsins. Samanlagt urðu því rétt tæplega helmingur allra slysa vegna útafaksturs eða aftanákeyrslu. 

Í 15 tilvikum mátti að hluta til rekja orsök slysa til hálku, þar af 12 í tengslum við útafakstur. Níu slys voru rakin til ölvunar ökumanns og þrjú til þess að ökumaður sofnaði við akstur. Eitt slys var rakið til farsímanotkunar ökumanns.

Sé tekið mið af tölum Umferðarstofu um hlutfall þeirra sem valda slysi og slasast sjálfir, má gera ráð fyrir að 44 ökumenn hafi orðið fyrir meiðslum í 92 slysum. Aðrir vegfarendur, þeir er ekki áttu sök á slysum en urðu fyrir meiðslum vegna aksturshegðunar annarra, eru því 80 talsins.