4 Desember 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns sem ók dökkvínrauðum jeppa á fimmtán ára pilt á reiðhjóli í Skólabæ við Árbæjarskóla um klukkan 10.20 föstudagsmorguninn 30. nóvember. Lögreglu var tilkynnt um slysið í gær en við skoðun á slysadeild um helgina kom í ljós að pilturinn var marinn, bólginn og tognaður.

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður umræddan ökumann um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu eru hinir sömu beðnir um að  hafa samband í síma 444-1000. Einnig má senda upplýsingar um málið í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is