13 Maí 2013 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns sem ók rauðleitum,  fimm dyra Opel Corsa um Mosaveg í Grafarvogi kl. 14 í gær, sunnudaginn 12. maí. Þar lentu bíllinn og karl á reiðhjóli í árekstri. Hlutaðeigendur ræddu saman á vettvangi, en lögreglan var ekki kölluð til. Henni var tilkynnt um málið í morgun, en reiðhjólamaðurinn hafði þá fundið fyrir verkjum í kjölfar óhappsins.

Við atvik eins og þetta er mikilvægt að ökumenn gangi úr skugga um að engin meiðsl hafi hlotist af né að skemmdir hafi orðið. Sömuleiðis er áríðandi að tilkynna málið til lögreglu, ekki síst vegna þess að áverkar eru ekki alltaf sjáanlegir á vettvangi. Lögreglan biður umræddan ökumann, sem er karl á miðjum aldri, um að gefa sig fram en hafi aðrir orðið vitni að slysinu, sem átt sér stað steinsnar frá Borgarholtsskóla, eru hinir sömu beðnir um að  hafa samband í síma 444-1000. Einnig má senda upplýsingar um málið í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is