15 Mars 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum Kársnesbrautar og Hábrautar í Kópavogi um hálfsjöleytið í gærkvöld, miðvikudaginn 14. mars. Þar rákust saman Nissan Micra LX og Daihatsu Move en bæði ökutækin eru rauð að lit. Annar ökumannanna var fluttur á slysadeild til aðhlynningar og hinn leitaði þangað síðar. Miklar skemmdir urðu á bílunum. Þeir sem urðu vitni að slysinu eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is

Frá vettvangi.