18 September 2007 12:00

Klukkan 16:56 í dag barst tilkynning til lögreglu um að maður hafi fallið af bifhjóli á Skólavegi á Fáskrúðsfirði. 

Í ljós kom að maður um þrítugt hafi fallið af bifhjóli þar sem hann ók hjólinu austur Skólaveg. 

Ökumaður slasaðist alvarlega og var fluttur með sjúkrabifreið á flugvöll á Egilsstöðum,  þaðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur þar sem hann var lagður inn á LHS.

Ekki er vitað frekar um líðan hans að svo stöddu.

Málið er í rannsókn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Eskifirði og ekki frekari upplýsingar að hafa.