17 Ágúst 2006 12:00

Á Menningarnótt nk. laugardag verða miklar umferðartakmarkanir og lokanir í miðborg Reykjavíkur. Ökumenn eru beðnir um að sýna þolinmæði og velja sér aðrar ferðaleiðir þennan dag. Búist er við þúsundum gesta á Menningarnótt og er fólki góðfúslega bent á bílastæði í nágrenni miðborgarinnar. Nánari upplýsingar eru á meðfylgjandi korti (Smellið á kortið til að stækka það!).