13 Ágúst 2004 12:00

Umsóknarfrestur um skólavist í Lögregluskóla ríkisins fyrir námsárið 2005 rann út þann 1. ágúst s.l.

Umsækjendur sem virðast við fyrstu sýn uppfylla öll almenn inntökuskilyrði eru 124, af þeim eru 95 karlar og 29 konur. Allar þessar umsóknir eru nú til meðferðar hjá valnefnd Lögregluskóla ríkisins og verða þeir sem uppfylla öll skilyrði boðaðir til inntökuprófa.

Talsvert var um að umsækjendur skiluðu ekki staðfestum gögnum um menntun og verða umsóknir þeirra ekki teknar til frekari meðferðar.

26 þeirra sem sóttu um skólavist uppfylltu ekki almenn inntökuskilyrði af ýmsum ástæðum svo sem vegna menntunarskorts, sakaferils eða aldurs.

Þann 16. ágúst n.k. verður búið að fara yfir allar umsóknir og í framhaldi af því verða hæfir umsækjendur boðaðir til inntökuprófa sem munu hefjast þann 30. ágúst n.k.

Þeir sem standast öll inntökupróf verða boðaðir til viðtals hjá valnefnd Lögregluskóla ríkisins sem hefur það hlutverk að velja 20 hæfustu einstaklingana úr hópi umsækjenda. Endanlegt val nefndarinnar mun liggja fyrir um miðjan október n.k.