10 Júní 2007 12:00

Í sameiginlegu eftirliti lögreglunnar á Seyðisfirði og Eskifirði í gær laugardag var ungur ökumaður stöðvaður á Fagradal eftir að hafa verið mældur á 149 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km.  Í framhaldinu var hann sviptur ökurétti til bráðabirgða. Ungi ökumaðurinn fékk ökuskírteini þegar hann varð 17 ára, nýverið, og var þetta í annað skiptið sem hann var tekinn fyrir of hraðan akstur.