8 Október 2013 12:00

Föstudaginn 27. september 2013, komu saman til fundar í Hveragerði fulltrúar Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra, Orkuveitu Reykjavíkur, Jarðskjálftaeftirlits Veðurstofunnar og Almannavarnanefndar Árnessýslu. Fjallað var um jarðskjálftamælingar við Húsmúla og hreyfingar í jarðskorpunni á vinnslusvæði Orkuveitunnar. Fundurinn var gagnlegur og sneri að því hvernig bezt yrði fylgzt með breytingum á svæðinu.

Fulltrúar Almannavarna  telja eðlilegt að fylgjast vel með öllum breytingum og gera tillögur um viðbætur á mælakerfi. Rétt þykir eins og ævinlega þegar fjallað er um slík málefni að fólk kynni sér reglur um það hvernig bezt sé að varast tjón vegna jarðhræringa.

Fundurinn var haldinn til að skiptast á upplýsingum og var talið að samráðið væri mjög gagnlegt.

Tengla á upplýsingar fyrir almenning er að finna á síðu Almannavarandeildar Ríkislögreglustjóra t.d.  http://www.nordurthing.is/static/files/baeklingar/almannavarnir_jardskjalftar_baekl.pdf  og litabók með fræðsluefni fyrir born á http://www.almannavarnir.is/upload/files/LITABOK_vef.pdf 

Ólafur Helgi Kjartansson

Lögreglustjóri á Selfossi