15 Nóvember 2004 12:00

Upplýsingar til umsækjanda tímabundins leyfis fyrir sölu skotelda í smásölu, frá og með 28. desember 2004 til og með 6. janúar 2005.

Þeir aðilar sem hyggjast sækja um leyfi fyrir sölu skotelda í smásölu í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kjalarnesi, Mosfellsbæ og Kjósarhreppi fyrir og eftir áramót 2004 – 2005, ber að sækja um slíkt leyfi til embættis lögreglustjórans i Reykjavík, fyrir 10. desember 2004. Leyfi eru veitt að fullnægðum skilyrðum vopnalaga nr. 16/1998 og gildandi reglugerðar um skotelda.

Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi:

1.      Leyfi eru aðeins veitt fyrir sölu skotelda að fyrir liggi umsögn Forvarnarsviðs slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins til aðstöðu og sölu skotelda, pökkunar- og geymslustaða. Einnig liggi fyrir leyfi lóðareiganda, húseiganda eða húsfélags ef umsækjandi er ekki umráðamaður lóðar eða húsnæðis þar sem sala á að fara fram og staðfesting tryggingafélags vegna sölu, geymslu og notkun skotelda.

2.      Ef fyrirhugað er að selja úr skúrum eða gámum, skal vera búið að ganga frá slíkum sölustöðum fyrir kl. 16:00, 28. desember 2004 svo skoðun geti farið fram á aðstöðu og öryggisþáttum. Sölustaðir skulu vera minnst 25 m2  og búnir samkvæmt kröfum Forvarnarsviðs slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

3.      Upplýsingar um geymslustað og meðhöndlun skotelda, samþykktan af lögreglu að fenginni umsögn Forvarnarsviðs slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fyrir óselda vöru við lok söludags, eða eftir að sölutíma lýkur, skal fylgja umsókn um söluleyfi.

4.      Tilgreina þarf ábyrgðarmann fyrir sölustað. Hann á að mæta á kynningarfund á lögreglustöðinni við  Hverfisgötu (vestari inngangur)

28. desember 2004, kl. 09:00 og taka við leyfisbréfi.

Að gefnu tilefni skal vakin athygli á að meðferð skotelda er einungis heimil á tímabilinu frá og með 28. desember – til og með 06. janúar.Gjald fyrir sölustað er kr. 3.000.- og greiðist við innlögn umsóknar hjá gjaldkera í afgreiðslu í Borgartúni 7.

Lögreglustjórinn í Reykjavík.