17 Október 2021 16:34

Fundur var haldinn í dag með Veðurstofu, almannavörnum og Múlaþingi vegna úrkomuspár á Austurlandi í nótt og fram á þriðjudag. Næstu tvo sólarhringa má búast við úrkomu á Austfjörðum. Gefin hefur verið út úrkomu- og skriðuviðvörun á sunnanverðum Austfjörðum.

Vindaspá gerir ráð fyrir SA-A átt 8-12 m/s. Þessi vindátt skapar úrkomuskugga á Seyðisfirði. Því er ekki talin ástæða til rýmingar húsa.

Hryggurinn milli skriðusársins og Búðarár er enn á hreyfingu þó hægt hafi á henni. Einn spegill (nr. 25) sýnir að stykkið sem hann stendur á hafi hrokkið til um 15-20 mm í gærkvöldi en sú hreyfing hefur ekki náð til annarra spegla á svæðinu.

Úrkoma næstu daga kann að verða til þess að einhver hluti hryggsins fari af stað. Sem fyrr er ekki gert ráð fyrir að hann fari allur í einu sökum þess hversu sprunginn hann er og gliðnaður. Útreikningar sýna að allar líkur eru á að varnargarðar og safnþró leiði efnið til sjávar og án þess að valda tjóni á mannvirkjum, jafnvel þó hryggurinn fari allur í einu.

Vel er fylgst með mælum í hlíðum ofan Seyðisfjarðar og viðeigandi ráðstafanir gerðar þyki ástæða til.

Engar hreyfingar hafa mælst í hlíðum ofan Seyðisfjarðar utan þeirrar er mælst hefur í hryggnum.

Áfram verði aðgæsla vegna umferðar á göngustígum meðfram Búðará og annars staðar þar sem varnargarðar beina skriðustraumum. 

Enn er í gildi óvissustig almannavarna á Seyðisfirði.

Minnt er á Hjálparsíma Rauða krossins 1717.