19 September 2009 12:00

Síðdegis í gær, föstudag, fóru lögreglumenn frá Selfossi í göngueftirlit eftir göngustíg vestan í Henglinum.  Tilgangurinn var að huga að utanvegaakstri torfæruhjóla og fjórhjóla.  Lögreglumennirnir gengu rúmlega sex kílómetra leið frá Bolavöllum til norðausturs um Húsmúla, Engidal og inn í Marardal.  Á leið sinni til baka suðvestur úr Marardal urðu þeir varir við tvö torfæruhjól sem var ekið inn í Marardal og þar eftir og utan við göngustíg.  Lögreglumennirnir snéru við og hittu á ökumennina innst inni í dalnum.  Mennirnir voru kærðir og mál þeirra sent til ákæruvalds.  Á svæðinu voru augljós og ljót merki um akstur torfæruhjóla og fjórhjóla.  Er með eindæmum hvar menn komast á torfæruhjólum og má segja að fátt standi fyrir þeim annað en þverhníptir hamrar.