17 September 2014 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, í samstarfi við Ríkisskattstjóra, kannaði í ágúst og september heimili og íbúðir á höfuðborgarsvæðinu þar sem gisting hafði verið auglýst í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum á borð við Facebook og airbnb.com. Um var að ræða eftirlit með gistileyfum og skattskyldu tekna vegna sölu á gistingu. Unnið verður úr þeim gögnum sem þarna söfnuðust en fjórum heimilum/íbúðum var lokað sem ekki höfðu leyfi til starfseminnar. Lögreglan og Ríkisskattstjóri munu halda eftirliti þessu áfram og hvetja því þá sem hyggjast leigja hús, íbúðir eða herbergi til ferðamanna að sækja um tilskilin leyfi áður en starfsemin hefst, vera með löglega tekjuskráningu og greiða af þeim tekjum lögbundna skatta og gjöld.Sækja þarf um rekstrarleyfi til lögreglu/sýslumanns áður en rekstur hefst og starfsleyfi til heilbrigðiseftirlits.

http://www.syslumenn.is/utanrvk/leyfi_skirteini/veitingaleyfi

https://www.rsk.is/atvinnurekstur/virdisaukaskattur/ferdathjonusta/.“