3 Október 2007 12:00

Valdemar Guðmundsson varðstjóri er hættur störfum í lögreglunni.  Hann hætti störfum í sumar en ekki tókst að ná öllum samstarfsmönnum hans saman fyrr en núna í dag.  Valdemar hefur starfað í lögreglunni í 34 ár, nánast upp á dag.  Lögreglustjóri fór yfir starfsferil hans í ræðu sinni og minntist þar á að hann hefði verið sérlega farsæll í starfi, um leið og hún þakkaði honum fyrir þau vel unnu störf hans.  Lögreglustjóri afhenti honum bókargjöf frá embætti lögreglustjórans á Vestfjörðum og bauð upp á kaffi og  kruðerí.