24 September 2008 12:00

Lögreglan á Hvolsvelli varar við miklum vatnavöxtum í ám á hálendi innan umdæmisins. Skv. upplýsingum frá Vatnamælingum nú í morgun eru ár á Þórsmerkurleið ófærar.

Þeir sem eiga erindi inn á þessar slóðir er bent á að hafa samband við Vegagerðina eða lögreglu vegna upplýsinga um færð.

Lögreglan hefur það sem af er þessari viku aðstoðað nokkra ökumenn sem fest hafa bifreiðar sínar í ám. Slík ferðalög eru hættuleg og eru einungis á færi kunnáttumanna á vel útbúnum jeppum.