31 Maí 2010 12:00

Nokkuð hefur borið á því að farið hefur verið inn um opna glugga á hótel og gistiheimilum að degi til í miðborginni að undanförnu og stolið dýrum búnaði frá ferðamönnum, sem þar hafa dvalið. Einnig hefur borið á því að veski kvenfólks á skemmtistöðum í miðborginni hefur verið stolið að kvöld og næturlagi, einkum um helgar.

Af þessum tilefnum beinir lögreglan á svæðisstöð 5 (Miðborg, Vesturbær og Seltjarnarnes) því annarsvegar til forráðamanna hótela og gististaða að láta loka gluggum jarðhæða þegar gestir dvelja ekki í herbergjum sínum og hinsvegar til kvenfólks sem er að skemmta sér í miðborginni að skilja ekki við sig veski með verðmætum í inni á veitingahúsunum.