7 Júlí 2014 12:00

Í dag kl. 10:00 verður umferð á Suðurlandsvegi í Kömbum flutt á hjáleið sem búin hefur verið til ofan við neðstu beygjuna vegna vinnu við undirgöng og verður svo næstu 2 vikur.   Leyfður ökuhraði verður jafnframt færður niður í 50 km/klst.   Búast má við töfum vegna þessa.   Ökumenn eru hvattir til að gæta varúðar og virða merkingar vegna framkvæmdanna til að umferð geti gengið slysalaust fyrir sig. 

Þá mun malbikunarflokkur vinna að malbikun Suðurlandsvegar austan við Selfoss í vikunni.  Önnur akrein þar verður lokuð og hleypt á til skiptis til austurs og vesturs.