1 Nóvember 2018 14:08

Búið er að flytja líkamsleifar þeirra er létust í bruna á Kirkjuvegi í gær af vettvangi og bíða krufningar. Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vinnur að vettvangsrannsókn ásamt sérfræðingum Mannvirkjastofnunar. Búið er að taka skýrslu af öðrum þeirra sem er í haldi lögreglu vegna brunans og skýrslutökur yfir hinum aðilanum standa yfir.   Gera má ráð fyrir að báðir aðilarnir verði leiddir fyrir dómara síðar í dag og gæsluvarðhalds krafist yfir þeim í þágu rannsóknar málsins. Rökstuddur grunur er um að eldsupptök séu af mannavöldum.