Frá vettvangi á Seyðisfirði í dag.
23 Desember 2020 19:12

Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi: 

  • Áfram hættustig á Seyðisfirði og rýmingar að hluta í gildi vegna skriðuhættu.
  • Búið að tryggja vettvang á Seyðisfirði og hlé gert á hreinsunarstörfum

Hlé hefur verið gert á hreinsunarstörfum og viðgerðum á Seyðisfirði, eftir skriðuföll síðustu daga, vegna óhagstæðrar veðurspár og jólahátíðar.  Vinna við að tryggja brak og lausamuni í dag gekk vel.  Unnið var að því að styrkja hús sem urðu fyrir skriðum og brak og lausamunir fjarlægðir eða fergdir.  Þar til hreinsunarstarf hefst á ný verður tíminn nýttur til þess að skipuleggja næstu skref og kærkomin hvíld fyrir viðbragðsaðila og aðra sem staðið hafa vaktina óslitið síðustu viku.

Hluti íbúa hefur snúið aftur heim en aðrir sem kusu að halda jólin annars staðar eða geta ekki snúið aftur heim þar sem húsnæði þeirra er innan rýmingarsvæða hafa fengið aðstoð við að finna húsnæði þar til óhætt verður að snúa aftur.

Vel er fylgst með því hvernig skriðusvæðið bregst við hlýnun næstu daga og verður staðan metin um leið og aftur kólnar og aðstæður verða hagstæðari.  Ákvörðun um stöðu rýmingar verður tekin 27. desember.

Þjónustumiðstöð almannavarna opnar næst í Herðubreið 27. Desember kl 11, en yfir jólin er hægt að senda inn fyrirspurnir á netfangið sey@logreglan.is  og ef erindið er brýnt má hringja í 839 9931.

Gleðileg jól.

Frá vettvangi á Seyðisfirði í dag.