9 Nóvember 2022 17:43

Fulltrúar frá embætti Ríkislögreglustjóra og Isavia áttu í dag fund til að fara yfir framkvæmd aðgerða lögreglu á Keflavíkurflugvelli aðfaranótt fimmtudagsins 3. nóvember síðastliðins.

Í aðgerðum sem slíkum hefur lögregla stjórn á framkvæmd þeirra og er mikilvægt að gott og skýrt samstarf sé milli hennar og starfsfólks á flugvellinum.

Það var aldrei ætlun aðila að hefta störf fjölmiðla með nokkrum hætti. Við yfirferð á framkvæmd aðgerðarinnar kom hins vegar í ljós að tilmæli voru ekki nægilega skýr og harma báðir aðilar að svo hafi verið. Ákveðið var á fundi fulltrúa embættis Ríkislögreglustjóra og Isavia í dag að taka ferli og verklag í aðgerðum af þessu tagi til gagngerrar endurskoðunar til að fyrirbyggja óskýrleika á vettvangi. Sú vinna mun hefjast nú þegar.

Sameiginleg yfirlýsing embættis ríkislögreglustjóra og Isavia