28 Desember 2012 12:00

Snjóalög og veðurspá fyrir Vestfirði er með þeim hætti að hús á ákveðnum svæðum hafa verið

rýmd með öryggi íbúa að leiðarljósi.  Þannig hafa verið rýmd nokkur hús á Patreksfirði og á

Ísafirði, auk nokkurra sveitarbæja í Dýrafirði, Önundarfirði og Hnífsdal.

Þá var veginum um Súðavíkurhlíð lokað nú síðdegis vegna snjóflóðahættu. Kl.18:00 í dag mun

ákveðnum vegaköflum verða lokað fyrir allri umferð af sömu ástæðu.  En þetta eru Eyrarhlíð,

Suðureyrarvegur, Flateyrarvegur og Gemlufallsheiði.

Vegfarendum sem staddir eru í Súðavík er bent á þjónustumiðstöð sem staðsett er í Víkurbúðinni í

Súðavík. 

Vegir þeir sem lokaðir hafa verið munu ekki verða opnaðir í dag. Opnun mun ráðast af veðri

næsta sólarhringinn.  Vegfarendum er bent á upplýsingasíma Vegagerðarinnar, 1777, ef óskað er

nánari upplýsinga um færð og veður.